Stöðva markaðssetningu sláturhúss

Ef ekki er unnt að framkvæma eftirlit getur stofnunin ekki …
Ef ekki er unnt að framkvæma eftirlit getur stofnunin ekki sannreynt að framleiðslan uppfylli ákvæði laga um hollustuhætti í matvælaframleiðslu. Myndin úr safni. mbl.is/Skapti

Matvælastofnun hefur stöðvað markaðssetningu afurða frá Sláturhúsinu Seglbúðum ehf. í Skaftárhreppi. Eftirlitsmönnum Matvælastofnunar var nýlega meinaður aðgangur að húsnæðinu og mun stofnunin ekki heimila dreifinga afurða frá sláturhúsinu fyrr en nauðsynlegt eftirlit hefur farið fram.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá stofnuninni.

Þar segir ennfremur, að tilgangur eftirlitsins hafi m.a. verið að fylgja eftir kröfum um úrbætur frá fyrri eftirlitsheimsóknum Matvælastofnunar.

„Ef ekki er unnt að framkvæma eftirlit getur stofnunin ekki sannreynt að framleiðslan uppfylli ákvæði laga um hollustuhætti í matvælaframleiðslu. Á meðan slíkt ástand varir er ekki hægt að heimila dreifingu matvæla og var markaðssetning stöðvuð á grundvelli 3. mgr. 30.gr laga nr. 93/1995 um matvæli,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert