Fimm í fangaklefa eftir slys

mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Fimm voru vistaðir í fangaklefa eftir umferðaróhapp á Þingvallavegi á fjórða tímanum í nótt. Ökumaðurinn er talinn hafa verið ölvaður en þrír þurftu að koma við á bráðamóttöku áður en þeir voru færðir í fangaklefa.

Í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu kemur fram að klukkan 3:13 í nótt hafi verið tilkynnt um bifreið sem hafði lent í tjóni á Þingvallavegi við Skálafell. Þegar lögregla kom á vettvang kom í ljós að fimm voru í bifreiðinni og af þeim voru þrír fluttir á bráðamóttöku Landspítalans, þar af einn handleggsbrotinn.

Eftir það voru fimmmenningarnir vistaðir í fangageymslu lögreglunnar vegna rannsókn málsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert