Var að abbast upp á viðskiptavini

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk tilkynningu um klukkan 13:45 í dag um karlmann sem væri abbast upp á viðskiptavini verslunar.

Lögreglumaður sem staddur var í versluninni reyndi að ræða við manninn en það endaði með átökum sem lauk með því að varnarúða var beitt á hann. 

Eftir þetta var árásarmanninum haldið og hann síðan færður á lögreglustöð og vistaður í fangaklefa þar til hann verður yfirheyrður.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert