„Virðingu kastað á glæ“

Útskipunargengi álversins, það er stjórnendur, að störfum í gær.
Útskipunargengi álversins, það er stjórnendur, að störfum í gær. mbl.is/Golli

Framsýn, stéttarfélag Þingeyinga, segir framkomu forsvarsmanna Rio Tinto Alcan í Straumsvík með ólíkindum og virðingu fyrirtækisins hafi verið kastað á glæ með framkomu við starfsmenn.

Framsýn lýsir yfir fullum stuðningi við starfsmenn álvers Rio Tinto Alcan í Straumsvík sem eiga í kjaradeilu við eigendur fyrirtækisins.

„Framkoma forsvarsmanna fyrirtækisins í garð starfsmanna er með ólíkindum og gróf aðför að íslenskum vinnumarkaði. Fram að þessu hefur verið borin ákveðin virðing fyrir starfsemi álversins enda hefur það skilað miklum gjaldeyristekjum í þjóðarbúið. Virðingu sem stjórnendur fyrirtækisins hafa nú kastað á glæ með yfirgangi, hótunum og lítilsvirðingu í garð starfsmanna. Ekki verður séð hvernig fyrirtækið ætlar sér að endurheimta fyrri virðingu og traust í ljósi atburða síðustu daga.

Fyrir liggur að útskipunargengi það sem gengið hefur í störf  hafnarverkamanna í Straumsvík að undanförnu er hæst launaðasta útskipunargengi Íslandssögunnar með sjálfan forstjóra álversins í fararbroddi,“ segir í ályktun sem félagsmenn samþykktu í gærkvöldi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert