MR með öruggan sigur

Lið MR lagði lið MA í fyrri viðureign undanúrslita Gettu betur og sló þar með MA út úr keppninni. MR náði 37 stigum en MA fékk 22. Sigurinn var aldrei í hættu þó aðeins hafi munað tveimur stigum á liðunum að loknum hraðaspurningum. MR tók fljótt forrystuna og sigraði eins og fyrr sagði með 37 stigum gegn 22.

Næsta föstudag kemur í ljós hvort það verði MH eða Kvennaskólinn sem mætir …..í úrslitum Gettu betur 2016. Úrslitaviðureignin fer fram í Háskólabíó föstudaginn 18.mars nk.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert