Tæplega 29 ára álft í Bárðardal

Álftir geta orðið býsna gamlar.
Álftir geta orðið býsna gamlar. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Fjörutíu og níu merkingarmenn merktu alls 12.568 fugla af 77 tegundum á síðasta ári og er það rétt undir meðaltali síðustu 10 ára.

Mest var merkt af skógarþresti, en ein tegund var merkt í fyrsta sinn hér á landi, ljóshöfðaönd, Anas americana. Á vef Náttúrufræðistofnunar hefur verið birt skýrsla um fuglamerkingar 2015.

Árið 2014 var aldursmet súlu slegið og gerðist það aftur árið 2015. Í bæði skiptin var um að ræða súlur sem voru merktar sem ungar í Eldey árið 1982. Fuglinn sem á aldursmetið nú fannst dauður á Orkneyjum í Skotlandi í ágúst síðastliðnum, þá rúmlega 33 ára gamall. Evrópumetið á ennþá bresk súla sem varð 37 ára og fimm mánaða, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert