Fastur í skafli á miðri brú

Frá Múlakvíslabrú um kl. 9:30 í morgun.
Frá Múlakvíslabrú um kl. 9:30 í morgun. Aðsend ljósmynd

Miklar umferðartafir eru nú á Suðurlandi.

Samkvæmt heimildum mbl.is situr bíll fastur í djúpum skafli á brú austan megin við Vík.

Heimildarmaður mbl.is var á góðum jeppa og gat „troðið sér framhjá“ á tvíbreiðri brúnni en var ekki með spotta til að aðstoða viðkomandi. Sagði hann fullljóst að yfir brúna kæmist enginn án þess að vera á breyttum jeppa og að nokkrir ökumenn sem biðu þess að komast yfir brúna gætu átt erfitt með það.

Uppfært 10.21

Brúin sem um ræðir er Múlakvíslarbrú og samkvæmt heimildum mbl.is hefur bíllinn setið fastur þar síðan klukkan sex í morgun.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert