Lögregla leitar fjögurra manna

Húsið er illa farið.
Húsið er illa farið. mbl.is/Eggert

Lögreglan leitar upplýsinga um mannaferðir við og nærri Grettisgötu 87 í gærkvöld en hús þar er illa farið eftir eldsvoða. Eftir fund lögreglu og slökkviliðs liggur fyrir að ekki verði farið inn í húsið í dag. Á því er þó sú undantekning að síðdegis í dag er fyrirhugað að fara í kjallara hússins og fjarlæga bíla og tæki sem þar eru.

Sást m.a. til tveggja manna eftir að eld og  reyks varð vart í húsinu en þeir virtust koma þaðan með einhverja hluti í farteskinu. Talið er að annar mannanna hafi haldið á flatskjá. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.

Lögregla óskar einnig eftir að ná tali af tveimur öðrum mönnum sem sáust við húsið en annar þeirra var klæddur stórri, rauðri eða appelsínugulri úlpu, og gengu þeir út á Rauðarárstíg og síðan eftir honum í suðurátt.

Um er að ræða iðnaðarhúsnæði og er það mjög illa farið eftir brunann. Lögreglu barst tilkynning um eld í húsinu kl. 20.14 í gærkvöld. Strax var ljóst að um stórbruna var að ræða og var allt tiltækt lið lögreglu og slökkviliðs kallað á vettvang.

Unnið var við að slökkva eldinn fram á nótt, en íbúðir við Snorrabraut 35 og 35a voru rýmdar og leituðu íbúarnir skjóls hjá ættingjum og vinum, auk þess sem einhverjir gistu á farfuglaheimilinu í Laugardal.

Rauði krossinn var kallaður til vegna þessa, en einnig var strætisvagn til staðar nærri vettvangi sem hægt var leita skjóls í. Fjarlægja þurfti nokkrar bifreiðar frá vettvangi og var dráttarbifreið kölluð til verksins.

mbl.is/Eggert

Rannsókn lögreglu á brunanum er hafin, en ekkert liggur fyrir um eldsupptök að svo stöddu. Ekki hefur enn þótt óhætt að fara inn í húsið, en lögreglan og slökkviliðið funda nú um málið og þá skýrist framhaldið frekar.

Þeir sem búa yfir upplýsingum um fyrrnefnda menn, eða annað sem kann að varpa ljósi á brunann, eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögreglu í síma 444 1000, en upplýsingum má einnig koma á framfæri í tölvupósti á netfangið 9726@lrh.is eða í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Í tilkynningunni segir að í húsinu sé rekin ýmis starfsemi, m.a. bifreiðaverkstæði og geymslur fyrir ferðavagna. Þá hafa listamenn aðstöðu í húsinu.

Þar segir jafnframt að í gærkvöld hafi vegfarendur komið á vettvangi og virt lokarnir lögreglu að vettugi og trufluðu störf björgunaraðila. „Slíkt er með öllu ólíðandi og raunar skammarlegt,“ segir í tilkynningunni.

Uppfært kl. 12.07

Eftir fund lögreglu og slökkviliðs, sem var að ljúka, liggur fyrir að ekki verði farið inn í húsið í dag.

Á því er þó sú undantekning að síðdegis í dag er fyrirhugað að fara í kjallara hússins og fjarlæga bíla og tæki sem þar eru.

Á morgun verða sérfræðingar fengnir til að meta  burðarþol m.t.t. frekari aðgerða á staðnum.

Lögreglan vaktar nú vettvanginn og gerir áfram þar til frekari ákvarðanir verða teknar.

mbl.is/Eggert
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert