Einn í haldi vegna brunans

Maðurinn var handtekinn í gærkvöldi vegna annars máls.
Maðurinn var handtekinn í gærkvöldi vegna annars máls. mbl.is/Eggert

Lögregla er með einn í haldi í tengslum við brunann á Grettisgötu 87 á mánudag. Lögregla mun nú kanna hvort hann sé annar tveggja manna sem sáust yfirgefa húsnæðið eftir að elds og reyks var vart.

Greint var frá þessu á vef Ríkisútvarpsins og staðfesti Jóhann Karl Þórisson aðstoðaryfirlögregluþjónn upplýsingarnar í samtali við mbl.is.

Að sögn Jóhanns Karl var maðurinn handtekinn í gærkvöldi vegna annars máls og á eftir að yfirheyra hann. Ekki hefur verið ákveðið hvort farið verður fram á gæsluvarðhald yfir honum.

Tæknideild lögreglu rannsakaði vettvanginn í morgun og hafa viðeigandi vátryggingafélög nú fengið aðgang að honum. Aðspurður sagðist Jóhann Karl ekki geta gefið upplýsingar um upptök eldsins. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert