Féll af svölum á þriðju hæð

Mynd er úr safni og tengist fréttinni ekki beint.
Mynd er úr safni og tengist fréttinni ekki beint. mbl.is

Einstaklingur hefur verið fluttur á slysadeild Landspítalans eftir að hafa fallið af svölum á þriðju hæð í fjölbýlishúsi í Seljahverfi í Breiðholti. Tilkynningin barst Neyðarlínu skömmu fyrir klukkan 23 í kvöld.

Lögreglumenn og sjúkraflutningamenn slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu mættu skömmu síðar á vettvang. Ekki er vitað um líðan þess sem fluttur var á sjúkrahús en samkvæmt heimildum mbl.is var hann með meðvitund í sjúkrabílnum.

Frekari upplýsingar um atvikið er ekki að fá á þessari stundu en lögreglan fer með rannsókn málsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert