Viðvörun vegna úrkomu og vatnavaxta

Varað er við vexti í ám á Snæfellsnesi, á Hvítársvæðinu …
Varað er við vexti í ám á Snæfellsnesi, á Hvítársvæðinu (bæði vestur og suður af Langjökli), kringum Eyjafjalla- og Mýrdalsjökul og við sunnanverðan Vatnajökul. Myndin er úr safni. mbl.is/RAX

Veðurstofa Íslands hefur sent frá sér viðvörun vegna úrkomu og vatnavaxta. Spáð er talsverðri rigningu um landið sunnan- og vestavert seint í dag og fram yfir hádegi á morgun.

Fram kemut í tilkynningu, að búast megi við mestri úrkomu í kringum fjöll og jökla á þessum svæðum og þar gæti sólarhringsúrkoma farið vel yfir 50 mm.

„Varað er við vexti í ám á Snæfellsnesi, á Hvítársvæðinu (bæði vestur og suður af Langjökli), kringum Eyjafjalla- og Mýrdalsjökul og við sunnanverðan Vatnajökul. Fólk er beðið um að sýna aðgát í nágrenni vatnsfalla og sérstaklega ef fara þarf yfir ár, þar sem vöð geta orðið varhugaverð.

Um helgina er útlit fyrir áframhaldandi suðlægar áttir með vætusömu og mildu veðri og eru líkur á að á sunnudaginn verði fyrsta asahláka ársins með miklum hlýindum. Því má gera ráð fyrir vatnavöxtum um mest allt land og að afrennsli gæti orðið mjög mikið. Við slíkar aðstæður gæti skriðuhætta aukist,“ segir í tilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert