Vilja bæta opinber innkaup

Fjármálaráðuneytið.
Fjármálaráðuneytið. mbl.is/Ernir

Betri nýting skattfjár og hagkvæmni í opinberum innkaupum hefur verið eitt af forgangsmálum Bjarna Benediktssonar, fjármála- og efnahagsráðherra. Vinna við að greina og bæta vinnubrögð í innkaupum ríkisaðila hófst þegar vorið 2014, þegar fjármálaráðherra skipaði starfshóp undir forystu Jóns Björnssonar, framkvæmdastjóra til að móta stefnu í innkaupamálum.

Kemur þetta fram í tilkynningu sem fjármála- og efnahagsráðuneytið birtir á heimasíðu sinni en tilefni þess er umfjöllun Kastljóss í kvöld. Greint var frá þeirri umfjöllun á mbl.is.

„Fjármála- og efnahagsráðherra skipaði vorið 2014 starfshóp, sem Jón Björnsson veitti formennsku, til að móta stefnu um árangursríka samvinnu ríkis og einkaaðila með áherslu á innkaupamál. Hópurinn lauk störfum í mars 2015 og var meginniðurstaða hans að hægt væri að ná fram umtalsverðum sparnaði í innkaupum ríkisins með því að leggja áherslu á sameiginleg innkaup, örútboð og skuldbindandi viðskipti við færri birgja. Umfang innkaupa ríkisins eru nú 140 ma.kr. á ári en þar af kaupir ríkið vörur og þjónustu fyrir um 88 ma.kr. á ári. Tillögur framangreinds starfshóps miðuðu að því að ná fram 2 – 4 ma.kr. hagræðingu í innkaupum á almennri vöru og þjónustu,“ segir í tilkynningu ráðuneytisins.

Var í kjölfarið skipuð verkefnisstjórn sem falið var að koma á sameiginlegum innkaupum ríkisstofnana með það að markmiði að nýta stærðarhagkvæmni ríkisins sem kaupanda og ná þannig fram hagræðingu í innkaupum.

„Miðað er við að verkefnisstjórnin starfi í 12-18 mánuði og er verkefninu skipt í þrjá áfanga. Fyrsti áfangi er hafinn sem felst í  greiningu, undirbúningi áætlanagerðar, söfnun upplýsinga frá stofnunum og tilraunaútboðsverkefnum. Þegar hefur verið ákveðið að öll innkaup stofnana ríkisins á tölvum á árinu 2016 verði framkvæmd í sameiginlegum útboðum eða örútboðum innan gildandi rammasamnings.  Hefur fyrsta sameiginlega útboðið á tölvum verið auglýst auk þess sem tvö önnur sameiginleg útboð fyrir stofnanir ríkisins verða auglýst á næstu dögum.“

Endurskoða löggjöf um opinber innkaup

„Heildarendurskoðun á lögum um opinber innkaup er að ljúka og verður frumvarp lagt fram nú á vorþingi.  Markmiðið með frumvarpinu er að einfalda núgildandi reglur, auka sveigjanleika í framkvæmd innkaupa og gera innkaupin skilvirkari fyrir opinbera kaupendur og fyrirtæki. Eftir sem áður er markmiðið að lög um opinber innkaup tryggi gagnsæi, jafnt aðgengi og auki samkeppni um opinbera samninga.

Verði frumvarpið að lögum eykst sveigjanleiki í innkaupum hjá opinberum kaupendum auk þess sem sameiginleg innkaup stofnana hér á landi og í öðrum ríkjum á Evrópska efnahagssvæðinu verða auðvelduð. Slík sameiginleg útboð auka möguleika að ná fram stærðarhagkvæmni ásamt því að afla tilboða frá fleiri fyrirtækjum og stuðla þannig að virkari samkeppni. Allt lýtur þetta að því að gera opinberum aðilum kleift að njóta hámarksávinnings af þeim möguleikum sem felast í sameiginlegum innkaupum og stuðla að betri nýtingu á almannafé og tryggja frekari hagræðingu í innkaupum hins opinbera.“

Nálgast má tilkynninguna í heild sinni hér.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert