Vann rúmar 14,7 milljónir

Einn hepp­inn spil­ari var með all­ar töl­ur rétt­ar í út­drætti kvölds­ins í lottó­inu. Hann nældi sér þar með í all­an pott­inn og fær rúmlega 14,7 millj­ón­ir króna í vinn­ing. Miðinn var seld­ur í Skerjakollu á Kópaskeri.

Þá voru tveir með fjórar réttar tölur í Jókernum og fá þeir hundrað þúsund krónur í vasann. Annar miðinn var keyptur í Happahúsinu í Kringlunni en hinn er í áskrift.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert