Eldur í Krummahólum

Frá Krummahólum í kvöld.
Frá Krummahólum í kvöld. mbl.is/Golli

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var í kvöld kallað út vegna elds í íbúð í Krummahólum í Breiðholti í Reykjavík.

Að sögn slökkviliðsins er eldurinn bundinn við eina íbúð en ekki liggur fyrir að öðru leyti hversu mikill bruninn er. Slökkviliðið hefur nú verið að störfum þar í um 20 mínútur. 

Uppfært 20:44

Búið er að ráða niðurlögum eldsins. Einn slökkvibíll er enn á staðnum og er verið að vinna að frágangi. Orsök eldsins liggur ekki fyrir, né umfang skemmda. 

Frá Krummahólum í kvöld.
Frá Krummahólum í kvöld. mbl.is/Golli
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert