Erlendir ferðamenn komu að manni stela úr bíl þeirra við Tryggvagötu seint í gærkvöldi. Þegar fólkið kom að var hann að róta í ferðatöskum þeirra og mun hann hafa komist yfir einhver verðmæti. Þjófurinn hljóp á brott þegar hann varð var við eigendur, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.
Á fjórða tímanum í nótt var maður á fertugsaldri handtekinn í Lindahverfi í Kópavogi. Maðurinn hafði gengið á milli bifreiða og farið inn í nokkrar rótað. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu er veriðað kanna hversu margar bifreiðar hann fór í og hvort skemmdir séu á þeim. Ekki hefur komið í ljós hverju hann hafði stolið.