Þingmaður vill reisa tvö sjúkrahús

Elín Hirst, þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
Elín Hirst, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. mbl.is/Rósa Braga

„Við Íslendingar verðum að byggja annað sjúkrahús innan fárra áratuga. Það er skýr krafa almennings í landinu sem vill eyða meiru af opinberu fé í heilbrigðismál. Þjóðarbúið hefur sjaldan eða aldrei staðið betur. Við skulum taka höndum saman í þessu máli, hætta að karpa um þetta. Flest bendir til þess að hér verði þjóðfélag með aldurssamsetningu og kröfur um heilbrigðisþjónustu í framtíðinni sem við þurfum að mæta vel og vandlega.“

Þetta sagði Elín Hirst, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, á Alþingi í dag þar sem hún lagði orð í belg í umræðum um það hvar nýtt hátæknisjúkrahús ætti að rísa. Sagðist hún telja mögulegt að byggja bæði upp við Hringbraut í Reykjavík og annars staðar. “Auðvitað höldum við áfram þeim framkvæmdum sem stefnt hefur verið að og hafnar eru á Landspítalalóðinni. Við megum engan tíma missa því að það eru svo mörg ár og áratugir sem hafa farið í súginn hjá okkur. Annað er hreint glapræði,“ sagði hún og bætti ennfremur við:

„En við eigum að hugsa stærra. Ég legg því til að við gerum hvort tveggja, að við byggjum og endurreisum eins og hægt er á Landspítalalóðinni og reynum að gera það á sem allra skemmstum tíma og förum að gera áætlanir strax um sjúkrahús sem á að taka við af LSH í framtíðinni. Þetta er algerlega tímabært og ekki nema skynsemi í því fólgin að byggja duglega undir helstu velferðarstoð þessa þjóðfélags, snúa af braut þar sem við erum annars flokks og koma okkur aftur í fremstu röð.“

Elín sagði Íslendinga þurfa að vera stórhuga eins og þegar Landspítalinn hafi verið reistur á sínum tíma á fyrri hluta síðustu aldar. „Mál númer eitt, tvö og þrjú núna er að koma allri þjónustu við bráðveika og bráðarannsóknum undir eitt þak eins fljótt og örugglega og hægt er. En við verðum að hugsa lengra eins og fleiri háttvirtir þingmenn hafa talað um hér í þessum ræðustól og í fjölmiðlum. Við eigum að hugsa til framtíðar.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert