Írskir vetrardagar á Akranesi

Írskir vetrardagar verða haldnir á Akranesi 17. til 20. mars.
Írskir vetrardagar verða haldnir á Akranesi 17. til 20. mars. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Írskir vetrardagar verða í fyrsta sinn haldnir á Akranesi  dagana 17. til 20. mars. Menningar- og safnanefnd Akraness samþykkti  á liðnu ári að undirbúa þessa nýjung í menningarlífi bæjarins.

Í tilefni af degi heilags Patreks, eða St. Patrick‘s Day, verður grænn dagur á Akranesi á morgun, fimmtudag.  Bæjarbúar og fyrirtæki eru sérstaklega hvött til að skarta grænum lit þann dag, að því er kemur fram á vef Akraneskaupstaðar.

Markmiðið með Írskum vetrardögum er að tengjast Írlandi enn frekar, meðal annars í gegnum bókmenntir og tónlist, en Írskir dagar hafa verið haldnir undanfarin sumur á Akranesi við góðar undirtektir.

María Neves, nemandi í viðburðastjórnun við Háskólann á Hólum, mun aðstoða við skipulag og utanumhald Írskra vetrardaga og er verkefnið liður í námi hennar á Hólum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert