Starfsmenn Fagverks unnu að holuviðgerðum á malbiki í Reykjavík í dag. Vegfarendur eru beðnir um að sýna aðgát og draga úr umferðarhraða er þeir eiga leið hjá viðgerðarflokkum sem nýta að nú er hagstætt veður til malbiksviðgerða.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.
„Það er þornað á öllum götum og hitinn mjög hagstæður,“ er haft eftir Ólafi Á. Axelssyni, verkefnisstjóra í malbiksviðgerðum í Reykjavík. Fagverk er með tvo vinnuflokka, auk þess eru starfsmenn hverfastöðva Reykjavíkurborgar sinna minni viðgerðum og útköllum í framhaldi af ábendingum vegfarenda.
Í dag unnu starfsmenn Fagverks á eftirtöldum götum:
Á næstu dögum verður unnið á eftirtöldum götum. Listinn er ekki tæmandi og bætt er við hann eftir þörfum:
Þessar viðgerðir eru fyrir utan minni skyndiviðgerðir sem hverfastöðvar Reykjavíkurborgar sinnir og holur á stofnbrautum sem Vegagerðin sinnir, segir í tilkynningu frá borginni.