Fjöldi kynnti sér Suðurnesjamódelið

Frá kvennanefndarfundi Sameinuðu þjóðanna í New York 2016
Frá kvennanefndarfundi Sameinuðu þjóðanna í New York 2016 Mynd/Velferðarráðuneytið

Hátt á annað hundrað manns sóttu fund á kvennanefndarfundi Sameinuðu þjóðanna í New York í dag þar sem íslensk stjórnvöld, í samstarfi við embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu og Stígamót kynntu svokallað Suðurnesjamódel í tengslum við aðgerðir gegn kynbundnu ofbeldi. Sagt er frá málinu á vef velferðarráðuneytinu.

Markmið fundarins var að miðla þekkingu sem skapast hefur í verkefnum íslenskra stjórnvalda og félagasamtaka sem hafa það að markmiði að draga úr ofbeldi gegn konum og kynferðisofbeldi. Þátttakendur á fundinum voru Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra, Sigríður Björk Guðjónsdóttir, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu ásamt Öldu Hrönn Jóhannesdóttur, yfirlögfræðingi hjá embættinu, Þórdísi Elvu Þorvaldsdóttur, rithöfundi og aðgerðarsinna og Guðrúnu Jónsdóttur fulltrúa Stígamóta.

Frétt mbl.is: Kynna Suðurnesjamódelið fyrir Sameinuðu þjóðunum

Sigríður Björk Guðjónsdóttir og Alda Hrönn Jóhannsdóttir kynntu samstarfsverkefni embættis lögreglustjórans og félagsþjónustunnar sem ber yfirskriftina „Að halda glugganum opnum.“ Verkefnið hefur að markmiði að bæta rannsóknir í málum er varða heimilisofbeldi með markvissari fyrstu viðbrögðum lögreglu, fækka ítrekunarbrotum, bæta tölfræðivinnslu, aðstoða þolendur og gerendur markvisst, nýta betur úrræði um nálgunarbann og brottvísun af heimili og að ná fleiri málum í gegnum refsivörslukerfið. 

Stígamót sýndu þrjú stutt myndbönd sem sýna að að baki tölfræðilegra upplýsinga eru sögur raunverulegra brotaþola kynferðisofbeldis sem hafa upplifað gróf brot á mannréttindum sínum. Þórdís Elva Þorvaldsdóttir, rithöfundur og aðgerðarsinni fjallaði um þá miklu vitundarvakningu sem orðið hefur um kynferðisofbeldi og ofbeldi gegn konum á Íslandi á undanförnum misserum, til dæmis með hinni svokölluðu Beauty tips byltingu og frelsun geirvörtunnar. Þá ræddi hún um stuttmyndirnar Fáðu já! auk Stattu með þér! og hvernig nýta megi samfélagsmiðla til að vinna að forvörnum meðal ungmenna.

Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra segir samvinnu allra sem að málaflokknum koma vera forsendu þess að árangur náist við að draga úr ofbeldi í íslensku samfélagi. Reynslan af verkefninu „Að halda glugganum opnum“ hefur staðfest nauðsyn þess að stjórnvöld, löggæsla, félagsþjónusta og heilbrigðiskerfið vinni saman að úrlausn mála.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert