„Nokkur orð um eiginkonu mína“

Hjónin Anna Sigurlaug Pálsdóttir og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.
Hjónin Anna Sigurlaug Pálsdóttir og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson. mbl.is/Eva Björk

„Þegar menn leggjast svo lágt að velta því upp hvort kona mín eigi ekki að teljast til hrægamma fyrir að hafa tapað peningum á bankahruninu get ég ekki látið það óátalið. Enginn á slíkar ákúrur síður skilið en hún.“

Þetta skrifar Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra á heimasíðu sína í dag en tilefnið er sú gagnrýni sem fram hefur komið á hann og konu hans, Önnu Sigurlaugu Pálsdóttur, vegna aflandsfélags í hennar eigu. Pistill Sigmundar nefnist „Nokkur orð um eiginkonu mína“.

Sjá fréttaknippi mbl.is: Erlent félag eiginkonu forsætisráðherra

„Stjórnmálaátök samtímans einkennast oft af því að „farið sé í manninn“ fremur en málefnið. Mér er nokkuð sama hvernig hjólað er í mig. Ég er ýmsu vanur í pólitískri umræðu. En menn hljóta að geta fallist á að það sé með öllu ólíðandi að ráðist sé á ættingja eða maka stjórnmálamanna til þess eins að koma á þá höggi,“ segir Sigmundur í pistli sínum.

Segir hann að frá því hann hóf þáttöku í stjórnmálum hafi engu að síður verið gerðar margar tilraunir „til að gera eignir eiginkonu minnar og ættingja tortryggilegar í von um að með því megi koma höggi á mig.“

Þá segist hann hafa haft þá reglu að ræða ekki málefni eiginkonu sinnar eða ættingja hennar í fjölmiðlum, og að hann hyggist halda sig við þá reglu nema grundvallarbreyting verði á íslenskum stjórnmálum.

„Sú breyting að eðlilegt eða æskilegt verði talið að málefni maka og fjölskyldna stjórnmálamanna séu til umræðu í tengslum við störf þeirra. Verði sú raunin mætti spyrja margra spurninga um maka stjórnmálamanna allt frá eignum að vinnu fyrir stjórnvöld á liðnum árum.“

Sigmundur sagði eiginkonu sinni að hún ætti ekki að gera …
Sigmundur sagði eiginkonu sinni að hún ætti ekki að gera ráð fyrir miklum endurheimtum af því fjármagni sem hún hefði lánað bönkunum. mbl.is/Ómar

Fórnfýsi og heiðarleiki

„En þegar menn leggjast svo lágt að velta því upp hvort kona mín eigi ekki að teljast til hrægamma fyrir að hafa tapað peningum á bankahruninu get ég ekki látið það óátalið. Enginn á slíkar ákúrur síður skilið en hún.

Ef það er eitthvað sem einkennir eiginkonu mína umfram annað er það fórnfýsi og heiðarleiki. Frá því við kynntumst hef ég sagt henni að hún sé of fórnfús og of upptekin af erfiðleikum annarra. Það er eðlilegt að hafa áhyggjur af mörgu í veröldinni og samfélagi okkar og vilja láta gott af sér leiða. Það er hins vegar ekki hollt að vera alltaf með hugann við vandamál og líða stöðugt fyrir erfiðleika annarra.“

Sigmundur segir eiginkonu sína hafa fórnað miklu fyrir hann og að það geri hún enn. Hann hafi sagt henni eftir fall bankakerfisins árið 2008 að hún ætti ekki að gera ráð fyrir miklum endurheimtum af því fjármagni sem hún hefði þá lánað bönkunum.

Nauðsynlegt væri að forgangsraða innistæðum á undan skuldabréfum, en ef endurreisa ætti samfélagið myndi þurfa að ganga lengra.

Hann segir það ekki skemmtilegt hlutverk að vera maki stjórnmálamanns.
Hann segir það ekki skemmtilegt hlutverk að vera maki stjórnmálamanns. mbl.is/Ómar

Einlæg og afdráttarlaus viðbrögð

„Eina leiðin til að endurreisa samfélagið væri að afskrifa mikið af kröfum á bankana og það myndi þýða að margir sem þegar hefðu tapað miklu á gjaldþroti þeirra myndu tapa enn meiru.

Ég man enn hvað viðbrögð hennar voru einlæg og afdráttarlaus. Hún sagði mér að ef það mætti verða til að draga úr þeim ótta og þjáningum sem við blöstu á Íslandi ætti það að vera markmiðið að afskrifa sem allra mest af kröfum á bankana,“ skrifar Sigmundur.

„Einhverjum kann að koma þetta á óvart en ég veit að þetta kemur engum sem þekkir Önnu Stellu Pálsdóttur á óvart. Alla tíð síðan hefur hún verið helsti hvatamaður minn í því að lágmarka tjón samfélagsins okkar.

Enginn hefur rekið mig harðar áfram í því. Það er ekki skemmtilegt hlutverk að vera maki stjórnmálamanns en hún hefur stutt mig alla leið í baráttu sem oft hefur verið erfið. Það gerir hún óhikað vegna þess að hún telur það mikilvægt fyrir aðra en sjálfa sig.“

Skammaðist sín fyrir hugdettu

Þá segir hann Önnu ekki hafa keypt kröfur á hendur bönkunum heldur þvert á móti tapað á því sem hún hafði lánað þeim.

„Þegar jafnvel þeir sem hafa verið skæðustu andstæðingar mínir í baráttunni fyrir því að tryggja að tap fjármálafyrirtækja færðist ekki yfir á íslenskan almenning finna sig svo í því að stökkva fram nú og reyna að ná höggi á mig með því að ráðast á konu mína læt ég það ekki gerast athugasemdalaust,“ skrifar Sigmundur.

„Ég skal viðurkenna að það hvarflaði að mér í kosningabaráttunni árið 2013 að ræða um að ég væri að berjast fyrir því að tekin yrði upp stefna sem myndi auka á tap eiginkonu minnar af bankahruninu.

Að athuguðu máli sá ég að það væri ekki forsvaranlegt og skammaðist mín reyndar fyrir að hafa látið mér detta í hug að nota fjárhagslegt tap eiginkonu minnar í pólitískri baráttu.“

Sigmundur birti pistilinn á heimasíðu sinni í dag.
Sigmundur birti pistilinn á heimasíðu sinni í dag. mbl.is/Árni Sæberg

Umræðan leitt tvennt í ljós

„En nú þegar fjármál eiginkonu minnar hafa verið gerð að opinberu umræðuefni finnst mér rétt að gera grein fyrir þessu. Um leið bendi ég á að þessi umræða hefur einkum leitt tvennt í ljós.

Í fyrsta lagi þá staðreynd að konan mín hefur greitt alla skatta af eignum sínum og ekki nýtt tækifæri til að fela nokkurn hlut. Reyndar hefur hún ekki einu sinni nýtt heimildir laga til að fresta skattgreiðslum. Í öðru lagi að hún hefur í eigin fjármálum eins og öðru tekið hagsmuni annarra fram yfir sína eigin.“

Að lokum víkur Sigmundur að þeim sem kennt hafi konu hans við hrægamma.

„Og varðandi hrægamma: Hrægammar eru þeir sem koma aðvífandi og reyna að gera sér mat úr ógæfu annarra og kroppa þá inn að beini. Hvað er þá andstæða hrægamma? Það eru þeir sem tapa en eru samt til í að fórna meiru sjálfir í þágu annarra.

Vonandi skilja þeir sem þetta lesa hvers vegna mér þykir lítið til þeirra koma sem kenna konu mína við hrægamma.“

Sjá pistil Sigmundar í heild sinni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert