Unnið að hreinsun hjólastíga

Gert er ráð fyrir að hreinsun í Reykjavík taki átta …
Gert er ráð fyrir að hreinsun í Reykjavík taki átta vikur, en það fer þó eftir veðri. mynd/Reykjavíkurborg

Byrjað er að hreinsa helstu hjólastíga í Reykjavík, en hægt var að byrja fyrr en áætlun sagði til um vegna góðrar tíðar.

„Við hreinsum sandinn af helstu stofnstígunum hjólaleiða fyrst og er það von okkar að það náist fyrir páska,“ segir Björn Ingvarsson, deildarstjóri þjónustumiðstöðvar borgarlandsins, að því er segir á vef Reykjavíkurborgar. 

Eftir páska verður farið á fullt að hreinsa stofnbrautir gatna og gönguleiða, en í heildina er gert ráð fyrir að hreinsun í Reykjavík taki átta vikur, en það fer þó eftir veðri.

<br/>

Hægt er að nálgast verkáætlun vorhreinsunar á vefsíðunni

<a href="http://reykjavik.is/thjonusta/hreinsun-gatna-og-gonguleida">reykjavik.is/hreinsun</a>

.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert