Ekkert staðfest um Íslending

Frá Istiklal stræti í Istanbúl í dag. Sjálfsmorðssprenging varð 5 …
Frá Istiklal stræti í Istanbúl í dag. Sjálfsmorðssprenging varð 5 að bana og 36 manns særðust. AFP

Utanríkisráðuneytið hefur enn sem komið er ekki fengið neina staðfestingu á því að Íslendingur hafi lent í árásinni sem var í Istanbúl í morgun. Upplýsingar um slíkt bárust ráðuneytinu frá tyrkneskum stjórnvöldum í dag.

Þrátt fyrir mikla eftirgrennslan borgaraþjónustu ráðuneytisins og ræðismanns Íslands í Istanbúl hjá tyrkneskum lögregluyfirvöldum og sjúkrahúsum borgarinn hefur ekkert komið fram sem staðfestir að Íslendingur hafi lent í árásinni. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ráðuneytinu.

Segir þar að borgaraþjónustan muni halda áfram að afla staðfestingar á þessu og birta frekari upplýsingar þegar tilefni er til.

Frétt mbl.is: Íslendingur særðist í árásinni

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert