Tveir árásarmenn í haldi

Lögreglan handtók veggjakrotara á Laugaveginum í gærkvöldi.
Lögreglan handtók veggjakrotara á Laugaveginum í gærkvöldi.

Tveir gista fangageymslur lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu fyrir líkamsárásir í gærkvöldi og nótt. Önnur þeirra var framin í miðborginni en hin í Grafarvoginum. Líkt og aðrar nætur voru ökumenn í vímu stöðvaðir á för um höfuðborgarsvæðið.

Í gærkvöldi handtók lögreglan mann á Laugaveginum fyrir veggjakrot en honum var síðan sleppt að lokinni skýrslutöku.

Um sexleytið var tilkynnt um innbrot og þjófnað í íbúð í vesturbænum. Ekki er vitað hver var þar á ferð og er málið í rannsókn lögreglu.

Í gærkvöldi var tilkynnt um innbrot og þjófnað í íbúð í Breiðholti og er málið í rannsókn lögreglu en þjófurinn hefur ekki fundist.

 Um miðnætti var tilkynnt til lögreglunnar um konu í annarlegu ástandi í Breiðholtinu. Lögreglan ákvað að láta hana gista í fangageymslu þar til ástand hennar batnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert