Grunaður um árás á konuna

Frá Ingólfsstræti - mynd úr safni
Frá Ingólfsstræti - mynd úr safni mbl.is/Árni Sæberg

Lögreglunni barst tilkynning um berbrjósta konu vera að brjóta rúðu í veitingahúsi við Ingólfsstræti um fjögurleytið í nótt. Þegar lögregla kom á vettvang hitti hún þar konu og karl en bæði voru þau í annarlegu ástandi og er karlinn grunaður um að hafa ráðist á konuna.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni reyndi konan að hlaupa af vettvangi en var handtekin af lögreglu þar skammt frá. Konan og maðurinn eru bæði vistuð í fangageymslu á meðan ástand þeirra lagast og hægt verður að ræða við þau.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert