Lögregla rannsakar líkamsárás á Dalvík

Dalvíkurbær.
Dalvíkurbær. © Mats Wibe Lund

Karlmaður var handtekinn á Dalvík um klukkan eitt í nótt grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. Var hann færður á lögreglustöðina að sögn lögreglunnar en einn farþegi var í bílnum auk ökumannsins.

Lítið magn fíkniefna fannst í fórum ökumannsins og voru þau gerð upptæk.

Þá leikur grunur á líkamsárás í heimahúsi á Dalvík í nótt. Getur lögregla ekki tjáð sig frekar um málavöxtu en rannsókn málsins er hafin.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert