Lokað á miðnætti

Þeir sem ætla út að skemmta sér í kvöld ættu að hafa í huga að það er aðeins opið til miðnættis enda föstudagurinn langi á morgun. Líkt og hefð er fyrir þá verður Vantrú með ólöglegt páskabingó þann dag.

Á föstudaginn langa eru skemmtistaðir lokaðir og flestar, ef ekki allar verslanir. En heimilt er að opna veitingastaði á miðnætti og hafa þá opna til klukkan 3 um nóttina eða 4:30 ef sérstakt leyfi er fyrir lengri opnunartíma. 

Á laugardaginn er hefðbundinn opnunartími skemmtistaða eða til klukkan þrjú um nóttina, aðfararnótt páskadags. 

Á páskadag er lokað en opna má staði um miðnætti og hafa þá opna jafn lengi og aðfararnótt laugardags. Á annan dag páska mega staðir vera opnir til klukkan eitt um nóttina.



mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert