„Hræðslan datt niður“

Um þessar mundir er ár liðið frá Free the nipple deginum svokallaða sem tröllreið íslensku samfélagi. Á deginum sjálfum myndaðist gífurleg samstaða á milli kvenna sem ýmist birtu á sér myndir berbrjósta á netinu eða fóru alla leið og beruðu brjóstin á almannafæri. Dagurinn var án efa mest áberandi í framhaldsskólum landsins og hafði hann mikil áhrif á ungu kynslóðina að mati fulltrúa ungra femínista.

Fyrri frétt mbl.is: „Stelpur komu út, bara berbrjósta“

Mbl.is ræddi við Steinunni Ólínu Hafliðadóttur, formann femínistafélagsins í Menntaskólanum við Hamrahlíð um upplifun hennar á deginum og umræðuna um jafnrétti. Að mati Steinunnar skapaði dagurinn í fyrra kennd í ungu fólki með eignarréttinn á líkamanum, sérstaklega þeim sem hafa lent í hefndarklámi. Hún segir mikilvægt að skoða vandamálið í heild, sem er það að konur hafi í gegnum tíðina lært að virða ekki líkama sinn.

Myndband sem birtist að hluta til í myndskeiðinu hér að ofan var tekið af Andra Haraldssyni á Free The Nipple deginum í fyrra og láðist að nefna það þegar að myndskeiðið var birt fyrst. Beðist er velvirðingar á því. Hægt er að sjá það í heild sinni hér. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert