Kveikt í á báðum stöðum

Eldur kom upp á tveimur stöðum í Fellahverfi í dag …
Eldur kom upp á tveimur stöðum í Fellahverfi í dag - um íkveikju er að ræða á báðum stöðum. mbl.is/Styrmir Kári

Allt tiltækt lið slökkviliðsins var að störfum í Gyðufelli 10 og Iðufelli 4 en kveikt var í á báðum stöðum með stuttu millibili um tvö leytið í dag. Töluverðar skemmdir eru í stigagangi beggja fjölbýlishúsanna. Að sögn varðstjóra í slökkviliði höfuðborgarsvæðisins leikur enginn vafi á að kveikt hafi verið í á báðum stöðum. 

Reykræstingu er lokið í Gyðufelli og slökkviliðið er að ljúka störfum í Iðufelli. Ljóst er að skemmdirnar eru töluverðar, bæði vegna elds og reyks. 

Eldur kom upp á tveimur stöðum í Fellahverfi í dag …
Eldur kom upp á tveimur stöðum í Fellahverfi í dag - um íkveikju er að ræða á báðum stöðum. mbl.is/Styrmir Kári
mbl.is/Styrmir Kári
mbl.is/Styrmir Kári
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert