Þrír þjófar gripnir glóðvolgir

Lögreglustöðin á Hverfisgötu
Lögreglustöðin á Hverfisgötu mbl.is/Þórður

Lögreglan handtók þrjá menn um miðnætti en þeir eru grunaðir um þjófnað í Höfðahverfi. Einn þeirra, sá sem ók, hefur verið kærður fyrir að aka ítrekað sviptur ökuréttinum. Mennirnir gista fangaklefa vegna rannsókn málsins. Alls eru átta í fangaklefum lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og eru það allt útlendingar.

Tveir menn voru handteknir um eitt leytið í nótt grunaður um að hafa stungið af frá umferðaróhappi. Þeir gista fangaklefa vegna rannsóknar máls en þeir óku báðir undir áhrifum fíkniefna og áfengis.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert