Dró starfsmann út af hótelinu

Hlemmur - mynd úr safni
Hlemmur - mynd úr safni mbl.is/Eggert Jóhannesson

Lögreglan handtók mann í mjög annarlegu ástandi við Hlemm um hálf níuleytið í gærkvöldi. Maðurinn hafði ætt inn á hótel og dregið starfsmann þar út og farið með hann í átt að lögreglustöðinni. Maðurinn hafði framvísað fölsuðum lögregluskilríkjum á hótelinu.

Þegar lögregla hafði af honum afskipti við Hlemm kynnti hann sig sem lögreglumann.   Maðurinn er vistaður í fangageymslu þar til hægt verður að ræða við hann.

 Í nótt handtók lögreglan tvo menn í miðborginni sem voru svo út úr heiminum vegna neyslu áfengis og fíkniefna að ákveðið var að láta þá gista í fangaklefa þar til ástand þeirra mundi lagast svo þeir færu hvorki sér né öðrum að voða.  Annar þeirra var með fíkniefni á sér.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert