Leitar að tveimur stolnum bílum

Mitsubishi Pajero-bifreiðinni hefur einnig verið stolið.
Mitsubishi Pajero-bifreiðinni hefur einnig verið stolið.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar að tveimur bifreiðum sem var stolið frá bílasölu og við bifreiðaverkstæði í Hálshverfi í Reykjavík.

Um er að ræða bifreiðarnar BG-M76 og SI-X48. Bifreiðin BG-M76 er svört Mercedes Benz E 220 CDI árgerð 2014 og bifreiðin SI-X48 er svört Mitsubishi Pajero árgerð 2008.

Þeir sem geta gefið upplýsingar um hvar bifreiðarnar eru staðsettar hafi samband við lögreglu í síma 444 1000. Einnig er hægt að hringja í 112 ef bifreiðarnar sjást í akstri og eru á ferðinni.

Fyrr í dag óskaði lögreglan á höfuðborgarsvæðinu eftir aðstoð fjölmiðla eingöngu vegna stolnu Mercedes Benz-bifreiðarinnar en í tengslum við rannsókn á öðru máli og frekari rannsókn á máli Benz-bifreiðarinnar hefur komið í ljós að Pajero-bifreiðinni hafði einnig verið stolið.  

Frétt mbl.is: Bens stolið á bílasölu

Mercedes Benz-bifreiðin.
Mercedes Benz-bifreiðin.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert