Alvarlegt bílslys á Suðurlandi

Einn var fluttur alvarlega slasaður með þyrlu Landhelgisgæslunnar á Landspítalann eftir bílveltu á Skeiðavegi, rétt sunnan við Miðfell, um fimm leytið í nótt. Fjórir aðrir voru í bílnum og voru þeir allir fluttir með sjúkrabílum á sjúkrahús. 

NÝ FRÉTT: Útskrifuð af gjörgæslu

Að sögn varðstjóra í lögreglunni á Suðurlandi voru tveir þeirra fluttir á sjúkrahúsið á Selfossi en tveir á bráðamóttöku Landspítalans. Áverkar þeirra eru minni en þess sem var fluttur með þyrlunni en hann er með höfuðáverka. Ekki er vitað hvað olli slysinu en ökumaðurinn er ekki grunaður um ölvun við akstur. Fólkið í bílnum eru ekki erlendir ferðamenn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert