Skvettu vökva í andlit fórnarlambsins

Úr Fellahverfi en myndin er úr safni.
Úr Fellahverfi en myndin er úr safni. mbl.is/Ásdís Ásgeirsdóttir

Maður var barinn með kylfu og vökva skvett í andlit hans á bifreiðastæði við Iðufell á sjöunda tímanum í gær, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu.  Árásarmennirnir voru tveir og gat fórnarlambið nafngreint þá. 

Að sögn lögreglu er árásarmannanna leitað en lögreglan gat ekki veitt upplýsingar um hversu alvarlegir áverkar mannsins eru. 

Skömmu fyrir sjö í gær var tilkynnt um innbrot í bifreið á langtímastæði við Reykjavíkurflugvöll.  Á vettvangi kom í ljós að búið var að brjótast inn í amk. 6 bifreiðar.  Ekki er vitað hverju var stolið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert