Pappakassi notaður fyrir skjöl ríkisráðs

„Ríkisráðstöskur“. Taskan sem sést til vinstri er sú sem fór …
„Ríkisráðstöskur“. Taskan sem sést til vinstri er sú sem fór í Bessastaðaferðina í fyrradag og er væntanlega keypt á árunum 2004 til 2005. Þá er sú svarta flugstjórataskan sem áður var í notkun. Ljósmynd/forsætisráðuneytið

Ekki er til nein sérstök taska í forsætisráðuneytinu sem gengur undir heitinu „ríkisráðstaska“.

Samkvæmt upplýsingum fyrrverandi og núverandi embættismanna er allur gangur á því hvernig skjöl hafa verið borin til forseta til undirritunar. Þannig var lengi vel notast við pappakassa, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.

„Ekki er til sérstök taska í forsætisráðuneytinu sem merkt er eða einkennd sem „ríkisráðstaska““, segir í svari Ragnhildar Arnljótsdóttur, ráðuneytisstjóra og ritara ríkisráðs, er Morgunblaðið kannaði sögu og hefðir í tengslum við skjalatösku sem embættismenn ráðuneytisins höfðu með á Bessastaði þegar Sigmundur Davíð Gunnlaugsson hugðist leggja fram beiðni um þingrofsheimild.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert