Umhverfisstofnun hefur skilað skýrslu um losun gróðurhúsalofttegunda á Íslandi frá árinu 1990 til 2014 til loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna.
Í skýrslunni er að finna ítarlegar upplýsingar um losun gróðurhúsalofttegunda á Íslandi og hvernig losunin hefur þróast frá árinu 1990 ásamt lýsingu á aðferðafræðinni sem notuð er við.
Árið 2014 var losunin 4.597 kílótonn af CO2-ígildum, sem er 26,5% aukning frá árinu 1990, en losunin hefur þó dregist saman um 10,7% frá árinu 2008. Þennan samdrátt í losun má einkum rekja til minni losunar frá stóriðju, þar sem myndun PFC í álverum hefur minnkað vegna betri framleiðslustýringar, en einnig til minni losunar frá fiskiskipum.