Guðni Th. með afgerandi forystu

Guðni Th. Jóhannesson.
Guðni Th. Jóhannesson. mbl.is/Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Dagana 6. til 9. maí kannaði MMR fylgi þeirra einstaklinga sem höfðu tilkynnt forsetaframboð. Niðurstöður leiddu í ljós að Guðni Th. Jóhannesson hefur mikla forystu með 59,2% fylgi. Sitjandi forseti, Ólafur Ragnar Grímsson, kom þar á eftir með 25,3% fylgi, en fylgi hans hefur minnkað um rúm 27 prósentustig frá síðustu könnun sem gerð var í lok apríl, þegar hann mældist með 52,6% fylgi.

Ný frétt: Ólafur Ragnar hættur við framboð

Fylgi Andra Snæs Magnasonar hefur einnig minnkað um yfir 20 prósentustig frá síðustu könnun og mældist nú 8,5%. Í fréttatilkynningu frá MMR er tekið fram að Davíð Oddsson tilkynnti um framboð sitt þegar um 3/4 hluta gagnaöflunarinnar hafið verið lokið, en Davíð  var bætt við sem svarmöguleika í könnuninni um leið og hann tilkynnti um framboð sitt í gær, sunnudag. Því fengu 27% svarenda Davíð Oddsson sem svarmöguleika.

Þegar fylgi þriggja efstu frambjóðendanna er skoðað eftir samfélagshópum kemur í ljós að Guðni Th. Jóhannesson hefur hlutfallslega meira fylgi hjá konum og þeim sem hafa lengri skólagöngu að baki. Aftur á móti hefur Ólafur Ragnar Grímsson hlutfallslega meira fylgi meðal karlmanna og þeirra sem hafa skemmri skólagöngu að baki, en Ólafur hefur einnig mun meira fylgi á landsbyggðinni heldur en á höfuðborgarsvæðinu. Andri Snær Magnason hefur hlutfallslega mest fylgi meðal yngsta aldurshópsins og þeirra sem hafa lengri skólagöngu að baki, segir í tilkynningu frá MMR.

Ólafur Ragnar Grímsson nýtur meirihluta fylgis meðal þeirra sem styðja Sjálfstæðisflokkinn og Framsókn, en Guðni Th. og Andri Snær njóta meira fylgis meðal stuðningsmanna hinna flokkanna.

Þegar kjósendur voru spurðir hver yrði líklegast fyrir valinu ef þeirra fyrsta val væri ekki í framboði kom í ljós að bæði kjósendur Ólafs Ragnars Grímssonar og Andra Snæs Magnasonar væru líklegastir til að kjósa Guðna Th. Jóhannesson, en 50,6% fylgjenda Ólafs Ragnars sögðust myndu kjósa Guðna ef Ólafur Ragnar væri ekki í framboði og 76,7% fylgjenda Andra Snæs Magnasonar sögðust kjósa Guðna ef Andri Snær væri ekki í framboði.

Af kjósendum Guðna Th. sögðust 26,3% vera líklegastir til að kjósa Ólaf Ragnar ef Guðni væri ekki í framboði og 31,0% sögðust vera líklegastir til að kjósa Andra Snæ ef Guðni væri ekki í framboði. Kjósendur annarra frambjóðenda væru líklegastir til að kjósa Ólaf Ragnar Grímsson (39,3%) eða Guðna Th. Jóhannesson (32,2%) ef viðkomandi frambjóðandi væri ekki í framboði.

Upplýsingar um framkvæmd:

Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 947 einstaklingar
Dagsetning framkvæmdar: 6. til 9. maí 2016

Niðurstaða könnunar MMR. Smellið á myndina til að sjá hana …
Niðurstaða könnunar MMR. Smellið á myndina til að sjá hana stóra.
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands. mbl.is/Golli / Kjartan Þorbjörnsson
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert