Líkamsárás telst upplýst

Langholtsskóli er meðal annars við Holtaveg.
Langholtsskóli er meðal annars við Holtaveg. Af vef Langholtsskóla

Líkamsárás við Langholtsskóla í síðustu viku telst upplýst. Búið er að ræða við gerendur og þolanda í málinu en tveir gerendanna eru ekki sakhæfir. Málið hefur vakið mikla athygli en myndband af árásinni var sýnt í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins.

Þetta kom fram í fréttum RÚV.

Þrjár stúlkur réðust á hina fjórðu með ofbeldi en um var að ræða gróft eineltismál sem hefur staðið yfir í nokkra mánuði.

Frétt mbl.is: Rannsóknin í eðlilegum farvegi

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert