Hanar útlægir af höfuðborgarsvæði

Enginn hani fær að vera í hænsnahópum í þéttbýlinu.
Enginn hani fær að vera í hænsnahópum í þéttbýlinu. mbl.is/Ómar Óskarsson

Umræða er í fagnefndum og bæjarstjórnum Kópavogs og Garðabæjar um að setja sérstakar reglur um hænsnahald. Gert er ráð fyrir að hægt verði að leyfa takmarkaðan fjölda hæna á hverri lóð en hanar verði gerðir útlægir úr bæjarfélögunum.

Hænsnahald hefur færst í vöxt í þéttbýlinu og hafa sveitarfélögin verið að setja reglur um það. Stundum koma upp mál þar sem óþrif stafa af hænsnahaldi og hanar hafa valdið ónæði hjá nágrönnum.

Guðmundur H. Einarsson, framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis, segir að áður hafi almennur grenndarréttur gilt. Fólk ætti að taka tillit til nágranna sinna. Eftir að hænsnahald komst í tísku hafi sveitarfélögin farið að setja sérstakrar reglur.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert