Dagur B. styður Magnús Orra

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri.
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri. mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Formannsframbjóðendurnir eru allir frambærilegir en ég leyni því ekki að ég tel að í núverandi stöðu eigum við besta kostinn í Magnúsi Orra Schram,“ skrifar Dagur B. Eggertsson borgarstjóri á Facebook-síðu sína.

Dagur segist stoltur af því að vera í stjórnmálaflokki sem gefur öllu flokksfólki tækifæri til að kjósa forystu sína og vill hvetja alla sem eiga kosningarétt til að nýta hann og kjósa nýjan formann rafrænt næstu daga. „Samfylking þarf á samtakamætti alls jafnaðarfólks landsins að halda, til að rétta úr erfiðri stöðu og lágu fylgi í aðdraganda alþingiskosninga í haust.“

Dagur segist styðja Magnús Orra og hafa persónulega reynslu af eldmóði hans.

„Ég hef persónulega reynslu af krafti og eldmóði Magga Orra, bæði þegar vel gengur og á móti blæs, en síðast en ekki síst þegar taka þarf til hendinni. Honum er lagið að fá fólk til að setja ágreining upp á borðið ef ágreiningur er fyrir hendi og takast á við viðfangsefnin frekar en að ýta þeim á undan sér. Hann leiðir mál til lausnar, af sanngirni og víðsýni. Þess vegna nýtur hann trausts langt út fyrir raðir flokksflólks. Og það er það sem við þurfum í dag. Hann er einlægur talsmaður menntunar og norrænnar velferðar, umhverfismála, loftslagsmála og öflugs atvinnulífs. En síðast ekki síst er hann liðsheildarmaður sem ég treysti til að leiða hvaða hóp sem er, ná upp stemmningu og eldmóði, hrífa fólk með sér og horfa fram á veginn. Og það er leiðin sem við eigum að vera á: fram og upp! Koma svo!“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert