Rannsókn á fjárkúgunarmálum lokið

Lögreglan hefur lokið rannsókn beggja málanna og er það nú …
Lögreglan hefur lokið rannsókn beggja málanna og er það nú í ákæruferli hjá embætti héraðssaksóknara. Ljósmynd/Kristinn Freyr Jörundsson

Fjárkúgunarmál systranna Hlínar Einarsdóttur og Malínar Brand sem tengist fyrrverandi forsætisráðherra, Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, og þar sem fyrrverandi samstarfsmaður Hlínar kærði hana fyrir að hafa haft af sér 700 þúsund krónur, eru komin í ákæruferli hjá embætti héraðssaksóknara. Þetta staðfestir saksóknari málsins, Kolbrún Benediktsdóttir, við mbl.is.

Tæplega hálft ár er síðan rannsókn á málinu sem tengdist Sigmundi lauk hjá lögreglu, en beðið hefur verið eftir lokavinnslu á hinu málinu í nokkurn tíma. Er rannsókn á því nú lokið. Þar sem málin eru eðlislík eiga sakborningar rétt á því að málin séu tekin saman þegar ákvörðun um ákæru er tekin og því var beðið eftir seinna málinu.

Saksóknari mun nú yfirfara málið og verður ákvörðun um hvort ákæra eigi í málinu eða ekki tekin í framhaldinu. 

Syst­urn­ar Hlín Ein­ars­dótt­ir og Malín Brand voru hand­tekn­ar í lok maí á síðasta ári grunaðar um að hafa sent bréf í pósti til for­sæt­is­ráðherra og kraf­ist þess að hann greiddi þeim til­tekna fjár­hæð. Fjár­mun­ina átti að skilja eft­ir á ákveðnum stað sunn­an Valla­hverf­is­ins í Hafn­ar­f­irði. Þar hand­tók lög­regla kon­urn­ar.

Nokkr­um dög­um síðar voru syst­urn­ar kærðar fyr­ir aðra fjár­kúg­un. Karl­maður kærði þær fyr­ir að hafa haft af sér 700 þúsund krón­ur. Syst­urn­ar sögðu þá pen­inga vera miska­bæt­ur vegna nauðgun­ar en maður­inn á að hafa nauðgað Hlín. Eft­ir að maður­inn kærði fjár­kúg­un­ina kærði Hlín hann fyr­ir nauðgun.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert