Líðan fólksins eftir atvikum

mbl.is/Eggert

Fjórir einstaklingar, sem fluttir voru á Landspítalann í kjölfar umferðarslyssins í Hvalfjarðargöngunum í gær, eru á sjötugs- og áttræðisaldri. Líðan þeirra er eftir atvikum samkvæmt upplýsingum frá spítalanum.

Samkvæmt upplýsingum frá sjónarvotti skullu jeppi sem var suðurleið og fólksbifreið sem var á norðurleið saman er jeppinn fór yfir á rangan vegarhelming. Í jeppanum var ökumaður ásamt tveimur farþegum en í fólksbílnum ökumaður og farþegi.

Hinn látni var farþegi í fólksbifreiðinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert