Hlaut sama dóm í Brasilíu

Þau voru handtekin í borginni Fortaleza í Brasilíu.
Þau voru handtekin í borginni Fortaleza í Brasilíu. Kort/Google

Maðurinn sem var handtekinn ásamt Birgittu Gyðu Bjarnadóttur fyrir fíkniefnasmygl í Brasilíu fékk nákvæmlega sama dóm og hún, fimm ár og 20 daga, samkvæmt heimildum mbl.is.

Dómarnir yfir þeim voru kveðnir upp sama dag, samkvæmt sömu heimildum. Ekki liggur fyrir hvort málinu verður áfrýjað.

Frétt mbl.is: Fékk fimm ára dóm fyrir fíkniefnasmygl í Brasilíu

Þau voru handtekin 26. desember í borginni Fortaleza með fjögur kíló af kókaíni í fórum sínum sem var falið í smokkum og fölskum botnum ferðatösku.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert