Tugir þúsunda fyrir sumarnámskeið

Kostnaðarsamt getur verið að senda börn á sumarnámskeið.
Kostnaðarsamt getur verið að senda börn á sumarnámskeið. mbl.lis/Eggert Jóhannesson

Foreldrar sem senda börn sín á sumarnámskeið geta þurft að greiða tugi þúsunda fyrir og getur kostnaðurinn margfaldast ef mörg börn eru í fjölskyldunni. Getur því verið um talsverðar upphæðir að ræða sem geta reynst mörgum fjölskyldum þungar í skauti. 

Yfir sumartímann senda margir foreldrar börn sín á hin ýmsu námskeið þar sem skólar eru lokaðir og foreldrar eiga sjaldnast jafn marga frídaga og börnin. Verðlagseftirlit ASÍ hefur tekið saman dæmi um sumarnámskeið sem í boði eru fyrir börn og unglinga. Námskeiðin eru af ýmsum toga og er verðmunur á milli þeirra mikill. Sem dæmi má nefna að námskeið hjá Dale Carnagie kostar 84.000 kr. á meðan tómstundanámskeið hálfan daginn hjá Íþrótta- og tómstundaráði Hafnarfjarðar kostar 4.300 kr.

Þrátt fyrir að ódýrasti kosturinn sé valinn fylgir því umtalsverður kostnaður að senda börn og unglinga á námskeið á sumrin, en gera má ráð fyrir að hálfsdagsnámskeið í viku kosti um 12.000 kr. og heilsdags vikunámskeið um 16.000 kr.

Sem dæmi þarf fjölskylda á höfuðborgarsvæðinu með 10 ára gamalt barn, sem fer í tvær vikur á námskeið allan daginn og í tvær vikur hálfan daginn, að greiða 60.500 kr. miðað við valið hér að neðan og er það fyrir utan greiðslu fyrir gæslu, hressingu og hádegismat.

Fjölskylda á höfuðborgarsvæðinu með 8 ára barn sem fer á eitt fimm daga námskeið allan daginn, annað heilsdagsnámskeið sem endar með útilegu og í tvær vikur hálfan daginn þarf að greiða 64.370 kr. miðað við valið hér að neðan, en það er fyrir utan greiðslu fyrir gæslu, hressingu og hádegismat.

„Þessi kostnaður getur svo margfaldast ef mörg börn eru í fjölskyldunni og ef börnin/barnið er í lengri tíma yfir sumarið í skipulagðri dagskrá. Hér getur því verið um talsverðar upphæðir að ræða sem reynst geta mörgum fjölskyldum þungar í skauti,“ segir í tilkynningu frá ASÍ.

Skoðuð voru verð á námskeiðum íþróttafélaga, á vegum íþrótta- og tómstundaráða, sveitarfélaga, skátafélaga og frjálsra félagasamtaka. Námskeiðunum í könnuninni er skipt eftir fjölda námskeiðsdaga og klukkustunda á dag. Víða er boðin gæsla á morgnana áður en námskeiðin hefjast, í hádeginu og eftir að dagskrá námskeiðanna lýkur á daginn. Misjafnt er hvort greiða þurfi aukalega fyrir þessa gæslu eða hvort hún er innifalin í námskeiðsgjaldinu, sama er að segja um hádegisverð og hressingu, matur er sjaldnast innifalinn í námskeiðsgjaldinu, en oft er hægt að kaupa heitan mat gegn vægu gjaldi. Það gjald sem gefið er upp í könnuninni er ávallt miðað við eitt stakt námskeið þannig að ekki er tekið tillit til afsláttarverðs, t.d. iðkendaafsláttar eða systkinaafsláttar. Við samanburð á verði námskeiða er því nauðsynlegt að hafa þetta í huga.

„Auk þess ber að athuga að hér er aðeins um verðsamanburð að ræða og sú þjónusta eða dagskrá sem í boði er á námskeiðunum er ekki metin. Úrvalið af sumarnámskeiðum fyrir börn og unglinga er mjög mikið og þessi könnun nær aðeins yfir hluta þeirra,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert