Hefur ekki áhrif á ferðir fólks

Myndin var tekin við Múlakvísl í morgun, miðvikudaginn 22. júní …
Myndin var tekin við Múlakvísl í morgun, miðvikudaginn 22. júní 2016. Áin er heldur vatnsmeiri en hún var fyrir nokkrum dögum. mbl.is/Jónas Erlendsson

Hlaupið sem er í Múlakvísl er minni háttar og er tengt jarðhitavirkni undir Mýrdalsjökli. Ekki er hætta á tjóni enn sem komið er en vel er fylgst með vatnshæð og rafleiðni í ánni. Hlaupið hefur ekki áhrif á ferðir fólk eins og staðan er núna en starfsfólk Veðurstofu Íslands fylgist náið með þróuninni. 

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands. 

„Mælir Veðurstofunnar á Múlakvíslarbrú sýndi stöðuga aukningu rafleiðni í ánni frá ~70 µS / cm til ~180 µS / cm á tímabilinu 20.–21. júní. Hin stöðuga aukning í rafleiðni bendir til að hlaupvatn hafi lekið undan einum katlanna á vatnasvæði Kötlujökuls. Svipaðir smálekar hafa áður komið í Múlakvísl um þetta leyti árs,“ segir einnig í tilkynningunni. 

Ekki er hætta á tjóni enn sem komið er en vel er fylgst með vatnshæð og rafleiðni í ánni. Veðurstofunni hafa ekki borist neinar tilkyningar um brennisteinslykt við þjóðveginn í nágrenni ánna. Eins og staðan er núna hefur þetta ekki áhrif á ferðir fólks, hlaupið getur staðið næstu daga en nýjustu mælingar sýna minnkandi rafleiðni.

Frétt mbl.is: Hlaup hafið í Múlakvísl

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert