Franski ferðamaðurinn látinn

mbl.is

Franski ferðamaðurinn, sem björgunarsveitarmenn leituðu að undir mikilli snjódyngju í á í Sveinsgili, norðan Torfajökuls, fannst látinn seint í gærkvöldi. Lögreglan á Selfossi staðfestir að maðurinn hafi verið látinn er hann fannst og búið sé að ná líki hans upp úr ánni og flytja til byggða.

Mikill fjöldi manna tók þátt í björgunaraðgerðunum sem stóðu sleitulaust yfir frá því samferðamaður mannsins tilkynnti atburðinn á þriðjudagskvöld.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert