Sigríður Andersen fær frelsisverðlaun

Sigríður Á. Andersen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
Sigríður Á. Andersen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins.

Samband ungra sjálfstæðismanna (SUS) hefur ákveðið að veita Sigríði Andersen, lögmanni og þingmanni Sjálfstæðisflokksins, og Almenna bókafélaginu Frelsisverðlaun Kjartans Gunnarssonar árið 2016. 

SUS hefur afhent verðlaunin á hverju ári frá árinu 2007. Þau hljóta einn einstaklingur og einn lögaðili sem að mati stjórnar SUS hafa aukið veg frelsishugsjónarinnar á Íslandi.

Í tilkynningu segir að Sigríður Andersen hljóti verðlaunin fyrir áralanga baráttu sína fyrir frelsi einstaklingsins til athafna og viðskipta. Hún hafi skrifað fjölda pistla og blaðagreina sem hafi haft góð áhrif á opinbera umræðu og hvatt til minni ríkisafskipta.

Hún tók sæti sem þingmaður á Alþingi 2015 og hafi síðan þá hvergi hvikað í baráttu sinni fyrir meira frelsi á öllum sviðum samfélagsins. Hún sé öflugur málsvari frelsisins, óháð því hvort málstaðurinn telst vinsæll eða óvinsæll.

Almenna bókafélagið hlýtur verðlaunin fyrir útgáfu bóka og rita sem gegna því hlutverki að upplýsa og fræða fólk um hugmyndafræði frelsisins.

„Áhersla bókafélagsins hefur frá fyrstu tíð verið sú að gefa út vandaðar bækur á góðu máli. Hefur félagið í því skyni látið þýða fjölda bóka og rita yfir á íslensku sem auðvelda lesendum að afla sér þekkingar á sviði frelsis og samfélagsmála. Þá hefur félagið einnig staðið fyrir útgáfu bóka um ýmis álitaefni samtímans, svo sem Icesave-málið og búsáhaldabyltinguna,“ segir í tilkynningunni.

Verðlaunin eru nefnd í höfuðið á Kjartani Gunnarssyni, fyrrverandi framkvæmdastjóra Sjálfstæðisflokksins, til að heiðra það starf sem hann hefur skilað til þess að auka frelsi á Íslandi og bera út hugmyndir frjálshyggjunnar.

Fyrri verðlaunahafar:

2007: Andri Snær Magnason og Andríki

2008: Margrét Pála Ólafsdóttir og Viðskiptaráð Íslands

2009: Davíð Scheving Thorsteinsson og Hugmyndaráðuneytið

2010: Brynjar Nielsson og InDefence

2011: Ragnar Árnason og Advice

2012: Hannes Hólmsteinn Gissurarson og AMX

2013: Gunnlaugur Jónsson og Samtökin '78

2014: Pawel Bartoszek og Rannsóknarsetur um nýsköpun og hagvöxt, RNH

2015: Vilhjálmur Árnason og Viðskiptaráð Íslands

Valhöll, höfuðstöðvar Sjálfstæðisflokksins.
Valhöll, höfuðstöðvar Sjálfstæðisflokksins. mbl.is/Rax
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert