Umfangsmiklar kannabisræktanir

Einn var handtekinn í tengslum við rannsóknina á kannabisræktuninni í …
Einn var handtekinn í tengslum við rannsóknina á kannabisræktuninni í iðnarhúsnæðinu og játaði viðkomandi sök. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði tvær kannabisræktanir í Hafnarfirði í vikunni og lagði hald á samtals um 300 kannabisplöntur. Önnur ræktunin var í íbúðarhúsi í bænum en hin í iðnarhúsnæði og voru þær nokkuð umfangsmiklar eins og að framan greinir. Lagt var hald á töluvert af búnaði sem tengdist starfseminni á báðum stöðunum.

Einn var handtekinn í tengslum við rannsóknina á kannabisræktuninni í iðnarhúsnæðinu og játaði viðkomandi sök, en rannsókn málsins er langt komin. Skýrslutökum í hinu málinu er hins vegar ólokið, en þar var kannabisræktun í tveimur herbergjum hússins. Þessu til viðbótar handtók lögreglan sölumann fíkniefna í Hafnarfirði, en við húsleit á heimili hans í bænum var lagt hald á kannabisefni og e-töflur. Þar var einnig að finna fjármuni, sem grunur leikur á að séu tilkomnir vegna fíkniefnasölu.

Fyrrnefndar aðgerðir eru liður í að hamla gegn sölu, dreifingu og framleiðslu fíkniefna, en lögreglan minnir á fíkniefnasímann, 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert