Mikil en góð umferð á Vesturlandi

Umferð hefur gengið vel fyrir sig á Vesturlandi í dag, …
Umferð hefur gengið vel fyrir sig á Vesturlandi í dag, að sögn lögreglu. mbl.is/Þórður Arnar Þórðarson

Mikil umferð hefur verið á Vesturlandi í dag, en samkvæmt upplýsingum frá lögreglu hefur hún gengið vel fyrir sig og raunar verið mjög góð.

Lögreglan á Vesturlandi segir engin umferðarslys hafa orðið í dag og enginn hefur verið tekinn grunaður um ölvunar- eða fíkniefnaakstur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert