Búið að tala við flesta vegna málsins

Sérsveitarmenn ríkislögreglustjóra að störfum.
Sérsveitarmenn ríkislögreglustjóra að störfum. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Ólafur Þór Hauksson héraðssaksóknari segir rannsókn á máli manns sem réðst á sérsveitarmann í íbúðarhúsi í Reykjavík nú fyrr í mánuðinum ganga vel. Málið er rannsakað sem brot gegn valdstjórninni.

Mbl.is hefur áður greint frá því að sam­kvæmt heim­ild­um fréttavefjarins hafi lög­reglu á höfuðborg­ar­svæðinu borist beiðni um aðstoð þetta kvöld. Sér­sveit­armaður á vakt var næst­ur hús­inu af þeim lög­reglu­mönn­um sem voru við störf þetta kvöld og sinnti hann því út­kall­inu. Þegar hann kom á vett­vang réðst maður vopnaður hnífi á hann og kom til átaka á milli þeirra.

„Það er búið að taka flestar skýrslur og rannsókninni miðar ágætlega,“ segir Ólafur Þór. Búið sé að tala við flesta sem málinu tengist, en beðið sé þó eftir stöku upplýsingum sem séu í ferli annars staðar.

Ólafur Þór gerir ráð fyrir að málið verði sent til saksóknara hjá embættinu á næstu vikum.

Reyndi ítrekað að stinga sérsveitarmann

Rannsaka árás á sérsveitarmann

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert