Lenka og Jón sigruðu á Reykhólum

Jón L. Árnason og Lenka Ptacnikova, sigurvegarar á Minningarmóti Birnu …
Jón L. Árnason og Lenka Ptacnikova, sigurvegarar á Minningarmóti Birnu Norðdahl. Ljósmynd/Hrókurinn

Íslandsmeistarinn Lenka Ptáčníková og stórmeistarinn Jón L. Árnason sigruðu á Minningarmóti Birnu Norðdahl á Reykhólum sem fram fór í gær. Keppendur komu hvaðanæva af landinu og var mikil stemmning í íþróttahúsinu þar sem mótið fór fram við frábærar aðstæður. 

Mótið var haldið til að minnast Birnu E. Norðdahl sem var brautryðjandi í kvennaskák á Íslandi. Birna var bóndi og listakona og fyrsta konan sem sögur fara af að hafi teflt á skákmóti hérlendis, árið 1940. Hún átti frumkvæði og allan heiður af því að íslensk kvennasveit fór í fyrsta skipti á Ólympíuskákmót, í Argentínu 1978.

Íslenskar landsliðskonur í skák voru heiðursgestir á mótinu á Reykhólum, og í þeim hópi voru skákkonur sem tefldu með Birnu á Ólympíumótum 1978 og 1980. Þetta var hluti af upphitun kvennalandsliðsins fyrir Ólympíumótið í Bakú sem hefst eftir hálfa aðra viku, að því er fram kemur í frétt frá Hróknum. 

Birna Norðdahl yngri leikur fyrsta leikinn fyrir Hrund Hauksdóttur gegn …
Birna Norðdahl yngri leikur fyrsta leikinn fyrir Hrund Hauksdóttur gegn Hannesi H. Ljósmynd/Hrókurinn

Vegleg peningaverðlaun

Tefldar voru átta umferðir með tíu mínútna umhugsunartíma og voru keppendur 37, þar af fjórir stórmeistarar. Í kvennaflokki urðu Lenka Ptáčníková og Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir jafnar og efstar, en Lenka var hærri á stigum. Guðlaug Þorsteinsdóttir, sem varð fyrst kvenna Íslandsmeistari, árið 1975, hreppti bronsið, en jafnar í 4.-7. sæti urðu Hrund Hauksdóttir, Veronika Steinunn Magnúsdóttir, Áslaug Kristinsdóttir og Sigurlaug R. Friðþjófsdóttir. Þær Áslaug, Guðlaug og Sigurlaug voru allar í landsliðinu samtíða Birnu, rétt eins og Svana Samúelsdóttir, sem tók núna þátt í skákmóti eftir langt hlé.

Svana Samúelsdóttir og Sigurlaug R. Frðþjófsdóttir tefldu með Birnu Norðdahl …
Svana Samúelsdóttir og Sigurlaug R. Frðþjófsdóttir tefldu með Birnu Norðdahl í kvennasveit Íslands á ólympíumótum. Ljósmynd/Hrókurinn



Í karlaflokki urðu Jón L. og Jóhann Hjartarson efstir og jafnir, en Jón var hærri á stigum. Í þriðja sæti varð Hannes Hlífar Stefánsson, sem mun leiða sveit Íslands á Ólympíumótinu í Bakú sem hefst núna í byrjun september.

Hrund og Veronika fengu verðlaun fyrir bestan árangur 20 ára og yngri, og heimamaðurinn Guðjón D. Gunnarsson, betur þekktur sem Dalli, varð efstur skákmanna með 2000 skákstig eða minna.

Hlynur Þór Magnússon, sagnfræðingur á Reykhólum, sem átti frumkvæði að …
Hlynur Þór Magnússon, sagnfræðingur á Reykhólum, sem átti frumkvæði að Minningarmóti Birnu flytur ávarp við setningu mótsins. Ljósmynd/Hrókurinn



Vegleg peningaverðlaun voru veitt á mótinu. Verðlaun í kvennaflokki voru ívið hærri en hjá körlunum, og er það algjör nýbreytni á skákmótum, að því segir í fréttinni. Það var að frumkvæði Finns Árnasonar, forstjóra Þörungaverksmiðjunnar á Reykhólum, sem styrkti mótið með verulegu fjárframlagi. Auk þess tefldi Finnur á mótinu, þó að árangur hans þar hafi kannski ekki verið alveg í takti við peningaframlagið.

Mikill skákáhugi á Reykhólum

Fjölmenni var við setningu mótsins á Reykhólum í gær og ríkti afar góður andi á mótinu. Samhliða fór fram sýning á munum sem tengjast Birnu, bæði listaverk eftir hana og verðlaunagripir hennar af skákmótum, sem og myndir sem tengjast sögu íslenskra skákkvenna. 

Krakkarnir á Reykhólum tóku virkan þátt í skákhátíðinni.
Krakkarnir á Reykhólum tóku virkan þátt í skákhátíðinni. Ljósmynd/Hrókurinn

Við setningu mótsins flutti Hlynur Þór Magnússon, sagnfræðingur á Reykhólum, ávarp, en hann var frumkvöðull að mótinu og skipuleggjandi ásamt skákfélaginu Hróknum. Setningarávarpið flutti Ingibjörg Birna Erlingsdóttir sveitarstjóri Reykhólahrepps, og svo lék Birna E. Norðdahl, barnabarn skákdrottningarinnar, fyrsta leikinn fyrir Hrund Hauksdóttur gegn Hannesi Hlífari.

Í mótslok þakkaði Hrafn Jökulsson, forseti Hróksins, fjölskyldu Birnu, fólkinu á Reykhólum og í Reykhólahreppi, keppendum og bakhjörlum, en þó sérstaklega Hlyni Þór Magnússyni, fyrir frumkvæðið og frábært samstarf við skipulagningu hátíðarinnar.

Í tilefni af hátíðinni færðu Hrókurinn og Þörungaverksmiðjan grunnskólanum á Reykhólum tíu taflsett að gjöf, og munu Hróksmenn efna til skákdaga í skólanum í haust. Mikill skákáhugi er meðal barna og ungmenna á Reykhólum og tóku þau virkan þátt í hátíðinni.

Frábærar aðstæður voru til taflmennsku í íþróttahúsinu á Reykhólum.
Frábærar aðstæður voru til taflmennsku í íþróttahúsinu á Reykhólum. Ljósmynd/Hrókurinn
Veronika Steinunn Magnúsdóttir og Finnur Árnason voru valin best klæddu …
Veronika Steinunn Magnúsdóttir og Finnur Árnason voru valin best klæddu keppendur mótsins. Ljósmynd/Hrókurinn
Birna Norðdahl, nafna og barnabarn Birnu heitinnar, ásamt heimamanninum Guðjóni …
Birna Norðdahl, nafna og barnabarn Birnu heitinnar, ásamt heimamanninum Guðjóni D. Gunnarssyni, sem náði bestum árangri skákmanna með minna en 2000 skákstig. Ljósmynd/Hrókurinn
Brynjar Pálmi Björnsson og Hrafn Jökulsson. Brynjar hlaut sérstaka viðurkenningu …
Brynjar Pálmi Björnsson og Hrafn Jökulsson. Brynjar hlaut sérstaka viðurkenningu fyrir ómetanlega aðstoð við framkvæmd skákhátíðarinnar á Reykhólum. Ljósmynd/Hrókurinn
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert